<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

Monday, February 02, 2004
Þessir Líbanir maður...:)

Líbanir aka toyota karina bíl. líb anir aka toyota karina bíl


Posted at 07:23 pm by stefanhelg
Comments (1)

Einu sinni enn...

Við unnum Hliðaskola 17-14. Eg nenni ekki að skrifa mikið nuna. Stærðfræði kennara fiflið mitt akvað allt i einu að við skyldum bara læra 15 bls. heima fyrir morgundaginn. Það eru 192 svona(svipuð) dæmi: 0,2(5x+4)+2,5(4x-5)=????? Helviti leiðinlegt. Eg fer eftir að eg verð buinn með þetta að borða og fer svo a videokvöld upp i skola og svo a spurningaliðsæfingu. Við erum að fara að keppa eftir nakvæmlega 7 daga 3 tima 37 min og 14 sek. við Rettarholtsskola. :) Eg kveð að sinni!!

Posted at 04:23 pm by stefanhelg
Make a comment

Monday, January 26, 2004
Gefum honum von...

Ég var að hlusta á eitthvað lag með tvíhöfða sem heitir ,,Gefum honum von'' og er búinn að vera með það á heilanum í lengri tíma. Lagið byrjar á kynningu sem hann Dick sem stjórnar þættinum Dick Tonight. Þar koma menn sem erú í hljómsveitinni Grafræningjarnir og voru þeir búnir að semja lagið ,,Gefum honum von'' sem þeir spila í þættinum. Lagið er um mann sem heitir Adrian Nigelson, sem er 92 ára gamall bandarískur milljarðamæringur sem er að deyja frá 19 ára eiginkonu sinni...
Þegar ég þjáðist síðast af þessum sjúkdómi þeas. að vera með eitthvað á heilanum þá var það lagið ,,Must be a reson vi I´m a king of a kastle'' sem Þóra nokkur Magnea á að þekkja!
-
Ég er að fara að keppa í Nema hvað í kvöld kl20:30 á móti Hlíðaskóla!

Posted at 04:56 pm by stefanhelg
Comments (1)

Sunday, January 18, 2004
Nema hvað?

Já, maður er bara orðinn frægur! Ég sagði hér í síðasta bloggi að ég væri að fara að keppa í spurningakeppni ÍTR sem heitir Nema hvað? Ég, Jón Davíð Davíðsson og Marteinn Sindri Jónson kepptum fyrir hönd Laugalækjarskóla í þessari keppni. Við kepptum í Tónabæ á móti liði Vogaskóla. Og viti menn, að sjálfsögðu unnum við, 26-18! NEMA HVAÐ? Næsta keppni fer fram mánudaginn 26.janúar 2004 í Tónabæ. Þá mætum við liði Hlíðaskóla, og ef við vinnum það lið þá komumst við í keppni um hverfismeistaratitilinn!
Þetta er slóð inná heimasíðu Íþrótta og Tómstundaráðs Reykjavíkur (ÍTR) og er þar meðal annars að finna mynd af mér sjálfum og upplýsingar um keppnir. http://www.itr.is/wppitr.nsf/pages/0B9044C79F51071B00256E1C00394265

Posted at 10:26 pm by stefanhelg
Make a comment

Saturday, January 10, 2004
Idol


Þessi 4 voru eftir síðast, Ardís Ólöf(neðst til vinstri) datt út!

Nota bene:Ég er ekki hrifin af Idol stjörnuleitinni og horfi yfirleitt ekki á þann þátt

Posted at 11:42 pm by stefanhelg
Comments (1)

Langt síðan síðast...

Jæja þá í þetta sinn...
Það er nú liðinn smá tími síðan ég bloggaði síðast, og ég nenni ekki að fara að telja allt sem hefur gerst síðast þá! En ég ætla að segja frá því sem á daga mína hefur drifið nú þessa fyrstu daga þorra. Ég byrjaði í skólanum í þessari viku, á þriðjudegi nánartiltekið. Það er eins og flestir vita, kvöl og pína að byrja í skólanum. Að þurfa að læra heima, vakna snemma, sofna snemma og fleira svoleiðis. EKKI SKEMMTILEGT. Áslaug Ellen G. Yngvadóttir kom hingað að Otrateigi 56 í gær, til þess eins að horfa á IDOL-stjörnuleit, hún var hjá ömmu (Stefanía Áslaug Tulinius) minni í ,,pössun'' og þar sem amma er ekki með stöð tvö þá kom hún hingað. Ardís Ólöf Víkingsdóttir var rekin út. Ég, Pabbi og mamma vorum sammála um það að þjóðin hefði átt að reka fíflið hana Önnu Katrínu. Aðallega til þess að sjá viðbrögðin hennar þegar hún yrði rekin. Hún myndi fara að hágrenja. Í einhverjum þætti var hún sett í neðstu 3 sætin. Þá varð hún svo svekkt að hún fór að grenja. Þorsteinn Helgi Árbjörnsson kom í til okkar í gær og gisti yfir nótt. Hann fór síðan í dag og flaug til Ameríku þar sem hann er í söngnámi við Oklahoma University. Hansína Margrét Halldórsdóttir kom með kvöldvélinni frá Egilsstöðum í kvöld en hún gistir hjá Sigríði Friðnýju Halldórsdóttur, systur sinni í kvöld. Við reiknum með að hitta hana í hádeginu á morgun, það verður gaman.
Næsta miðvikudag keppi ég ásamt 2 öðrum í liði Laugalækjarskóla við Lið Vogaskóla í spurningakeppninni, Nema Hvað. wish me luck!                                                       
,,Veriði svo góð við allt og alla. Þá gengur allt svo miklu betur!'' (Afi, Með afa, Stöð 2)
Þangað til næst, bless.

Posted at 03:37 pm by stefanhelg
Comments (2)

Tuesday, September 30, 2003
Blogggggari

Ég tek ekki þátt í svona vitleysu!
Meira seinna...

Posted at 08:59 am by stefanhelg
Comments (1)